1:1 Páll, kallaður að Guðs vilja til að vera postuli Jesú Krists, og Sósþenes, bróðir vor, heilsa
1:2 söfnuði Guðs í Korintu, þeim sem helgaðir eru í Kristi Jesú, heilagir að köllun til, ásamt öllum þeim, sem alls staðar ákalla nafn Drottins vors Jesú Krists, sem er þeirra Drottinn og vor.
1:3 Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
1:4 Ávallt þakka ég Guði mínum yðar vegna fyrir þá náð, sem hann hefur gefið yður í Kristi Jesú.
1:5 Í honum eruð þér auðgaðir orðnir í öllu, í hvers konar ræðu og hvers konar þekkingu.
1:6 Vitnisburðurinn um Krist er líka staðfestur orðinn á meðal yðar,
1:7 svo að yður brestur ekki neina náðargjöf meðan þér væntið opinberunar Drottins vors Jesú Krists.
1:8 Hann mun og gjöra yður staðfasta allt til enda, óásakanlega á degi Drottins vors Jesú Krists.
1:9 Trúr er Guð, sem yður hefur kallað til samfélags sonar síns Jesú Krists, Drottins vors.
1:10 En ég áminni yður, bræður, í nafni Drottins vors Jesú Krists, að þér séuð allir samhuga og ekki séu flokkadrættir á meðal yðar, heldur að þér séuð fullkomlega sameinaðir í sama hugarfari og í sömu skoðun.
1:11 Því að mér hefur verið tjáð um yður, bræður mínir, af heimilismönnum Klóe, að þrætur eigi sér stað á meðal yðar.
1:12 Ég á við þetta, að sumir yðar segja: ,,Ég er Páls,`` og aðrir: ,,Ég er Apollóss,`` eða: ,,Ég er Kefasar,`` eða: ,,Ég er Krists.``
1:13 Er þá Kristi skipt í sundur? Mun Páll hafa verið krossfestur fyrir yður? Eða eruð þér skírðir til nafns Páls?
1:14 Ég þakka Guði fyrir, að ég hef engan yðar skírt nema Krispus og Gajus,
1:15 til þess að enginn skuli segja, að þér séuð skírðir til nafns míns.
1:16 Jú, ég skírði líka Stefanas og heimamenn hans. Annars veit ég ekki til, að ég hafi skírt neinn annan.
1:17 Ekki sendi Kristur mig til að skíra, heldur til að boða fagnaðarerindið, _ og ekki með orðspeki, til þess að kross Krists missti ekki gildi sitt.
1:18 Því að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs.
1:19 Ritað er: Ég mun eyða speki spekinganna, og hyggindi hyggindamannanna mun ég að engu gjöra.
1:20 Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður? Hvar orðkappi þessarar aldar? Hefur Guð ekki gjört speki heimsins að heimsku?
1:21 Því þar eð heimurinn með speki sinni þekkti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að frelsa þá, er trúa, með heimsku prédikunarinnar.
1:22 Gyðingar heimta tákn, og Grikkir leita að speki,
1:23 en vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku,
1:24 en hinum kölluðu, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs.
1:25 Því að heimska Guðs er mönnum vitrari og veikleiki Guðs mönnum sterkari.
1:26 Bræður, hyggið að köllun yðar: Þér voruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir.
1:27 En Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur heimsku, til að gjöra hinum vitru kinnroða, og Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur veikleika til að gjöra hinu volduga kinnroða.
1:28 Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrirlitna hefur Guð útvalið, það sem ekkert er, til þess að gjöra að engu það, sem eitthvað er,
1:29 til þess að enginn maður skuli hrósa sér fyrir Guði.
1:30 Honum er það að þakka að þér eruð í samfélagi við Krist Jesú. Hann er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti, helgun og endurlausn.
1:31 Eins og ritað er: ,,Sá, sem hrósar sér, hrósi sér í Drottni.``