22:29 þá skal maðurinn, er lagðist með henni, greiða föður stúlkunnar fimmtíu sikla silfurs, en hún skal verða kona hans, fyrir því að hann hefir spjallað hana. Honum skal eigi heimilt að skilja við hana alla ævi sína.
22:30 Eigi skal maður ganga að eiga konu föður síns né fletta upp ábreiðu föður síns.