14:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Heimskinginn segir í hjarta sínu: ,,Guð er ekki til.`` Ill og andstyggileg er breytni þeirra, enginn gjörir það sem gott er.
14:2 Drottinn lítur af himni niður á mennina til þess að sjá, hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs.
14:3 Allir eru viknir af leið, allir spilltir, enginn gjörir það sem gott er _ ekki einn.
14:4 Skyldu þeir ekki fá að kenna á því, allir illgjörðamennirnir, þeir er eta lýð minn sem brauð væri og ákalla eigi Drottin?
14:5 Þá skulu þeir verða mjög óttaslegnir, því að Guð er hjá kynslóð réttlátra.
14:6 Þér megið láta ráð hinna hrjáðu til skammar verða, því að Drottinn er samt athvarf þeirra.
14:7 Ó að hjálpræði Ísraels komi frá Síon! Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns, skal Jakob fagna og Ísrael gleðjast.