61:1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Eftir Davíð.
61:2 Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni.
61:3 Frá endimörkum jarðar hrópa ég til þín, meðan hjarta mitt örmagnast. Hef mig upp á bjarg það, sem mér er of hátt.
61:4 Leið mig, því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinum.
61:5 Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð, leita hælis í skjóli vængja þinna. [Sela]
61:6 Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín, þú hefir uppfyllt óskir þeirra er óttast nafn þitt.
61:7 Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns.
61:8 Hann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann.